Friday, June 30, 2006

Helgin framundan...

DJÖFULINN SJÁLFUR....

Konan er með ættarmót, sem er allt gott og blessað, skemmilegur hópur þar á ferð og allt það......EN.....

Það spáir ragnarrökum á þessu svæði um helgina, rigningu og roki........JÍBBI FOKKING JEI....ohhhhh....

Ekkert sem bíður góðan daginn eins og að vakna kl 07 um morgunin og vera í spreng, með svanga grislinga með sér, fara út ....og míga uppí vindinn að gefnu tilefni..

Maður er nefnilega bara virkilega þreyttur eftir vikuna, búinn að vera frekar heavy, endanlega klára sig svo líkamlega og andlega með útileigu frá helvíti, og mæta svo gersamlega ónýtur á mánudagi til vinnu.

Ég elska konuna mína.....en ....com on......þetta er of mikið...

Tuesday, June 27, 2006

Kominn á nýja hjólið....

Má EKKERT vera að því að blogga...farinn að hjóla....blss

Monday, June 26, 2006

Gamli CBR fer í dag, Nýji kemur á morgun.

Já gleði gleði....

Í dag fær blámann nýjan eiganda, og ég verð hjólinu fátækari, en í stuttan tíma, fer að skoða og vonandi sækja nýja CBR´inn í kvöld eða dag. Sem er 929RR hjól, framleitt það herrans ár 2001. Að vísu er þetta "fixer upper" en það er bara gaman.....

Gaman að segja frá því að maður hjólaði næstum 500km um helgina......gott veður allan tíman...þingvellir og flúðir....allur pakkinn.

Svo var haldið innflutningsparty hjá Gísla Alla.....úff.....rosa party maður....og þinka í stíl við það.....rosa grín ...... Kalli fór á kostum....sofnaði og vaknaði 6 sinnum í leigaranum heim.....bara flottur..

Friday, June 23, 2006

R1, elsku vinur og félagi.

Endalaust er ég feginn að það er allt í lagi með þig kallinn minn, þegar þú hringdir í gær og sagði mér frá þessu, hugasði ég, "nei andskotinn, hann færi nú ekki að spila með mig svona".
Ljótt að hjólið skildi rispast, en fyrir öllu er að þú andar og er heill kæri vin. Tryggingarnar redda hjólinu, við verðum brátt komnir á malbikið aftur. Ég er persónulega snarhættur við öll kaup á stærra hjóli í bili.

Gott að það er í lagi með þig félagi.....úff...það eru ekki allir jafn heppnir.

Thursday, June 22, 2006

Ó trú lega fall egt hjól


gggggggggrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

Þingvellir......snilld...

Fórum nokkur saman á Þingvelli í gær, " komiði með, sögðu þau, við tökum því rólega" Yeah right...

Maður keyrðu nú helvíti greitt, samt var maður skilinn eftir, samt á köflum var maður að pína CBR´inn, ALGER SNILLD... ég elska þingvelli, og skemmilegur hópur þarna á ferð...

Veðrið var eins og best var á kosið, þetta sumar verður æðislegt. Svo kíkir maður í Hvalfjörðin í kvöld, víst skemmtilegar beygjur þar....náttlega fallegur fjörður líka...kannski að maður kíki með einhverjum fleirum...

P.s.

R1,......bíddu bara......maður dettur á bak á 1000cc einn daginn.........*grenji*.......þá dettur manni kannski ekki í hug að fara af setja niður standarann næst þegar þú ferð framhjá...heheheh

Wednesday, June 21, 2006

Hann er nú að sækja á þessi dagur....

Sól í heiði......sagðann....

Vestræn tækni hefur nú náð sínum hápunkti, með þeim grilljörðum sem eitt er í læknavísindi síðustu ár, hafa læknar nú komið með á markað "Skitustoppara"...... Hve auðugt okkar líf er...

Þetta verslaði konan áðan og viti menn, maður er bara vinnufær aftur....svona eiginlega....

Svo fer maður í kvöld og hjólar einhvern helling.....með félögunum....ó hvað verður gaman þá, þeir sem ætla hjóla með kl 20, endilega pósta hérna....

Not a good day....

Nei, ekki góður þessi dagur, dagurinn byrjaði á því að klósettatriðið úr Dumb and Dumber, var tekið á vinnustaðnum......vaktu mikla lukku hjá nærstöddum gæddir þeim hæfileikum að hafa nef :/

Annars er ég fullur tilhlökkun yfir því að hanga inni í allan dag í þessu veðri, og get ekki hjólað og vera að drepast í maganum.....gleði gleði....

Annars sá ég 16 blocks með Willisnum í gær, massa fín mynd þar á ferð, ánægður með Willisinn að venju, þó persónulega hefði ég skotið vitnið sjálfur í hans sporum....þvílíkt pirandi gaur....úff.

En svona er þetta, aftur að vinna....

Tuesday, June 20, 2006

Jæja....900RR...virkilega að spá....


Er mikið að spá í að kaupa mér einnig Hondu CBR 900RR 2000 módelið....

Virkilega fallegt hjól, fæ það fyrir ekkert mikið meira en mitt er metið á...

Hérna er gripurinn, hvering líst fólki á...ekki skemmir fyrir að það er 60 hestum stærra en það sem ég er á núna.... :)

Góður Hjólatúr í gær.

Rúntuðum um Rvk og nágrenni í gær. Ég, Árni og Vargur.....massagaman.....Vargur er svolítið biluð, en það er alltílæ...ég er það líka.....ekki það, maður fær svona á tilfinninguna að maður sé á umhverfisvænu metanhjóli þegar maður rúntar með þessum tveim :)

Svo spáir hann bara blíðu næstu daga alveg fram á sunnudag....verður mikið hjólað þessa vikuna...

My sweet CBR 600 F3 (pínulítið moddað)

Já, nú er friðurinn úti, landsmenn góðir, þröngir hálsar......

Nú skal brenglaðri hugmyndafræði minni komið á framfæri, heimurinn er tilbúinn.

Hjólið mitt ...........
Konan mín.......
svo náttlega....börnin....