Friday, June 23, 2006

R1, elsku vinur og félagi.

Endalaust er ég feginn að það er allt í lagi með þig kallinn minn, þegar þú hringdir í gær og sagði mér frá þessu, hugasði ég, "nei andskotinn, hann færi nú ekki að spila með mig svona".
Ljótt að hjólið skildi rispast, en fyrir öllu er að þú andar og er heill kæri vin. Tryggingarnar redda hjólinu, við verðum brátt komnir á malbikið aftur. Ég er persónulega snarhættur við öll kaup á stærra hjóli í bili.

Gott að það er í lagi með þig félagi.....úff...það eru ekki allir jafn heppnir.

2 comments:

Gauti said...

sammála því ! . . og hann Andri summaði þig helvíti vel upp í kommentinu á "900RR blogginu" . . hló mig máttlausann :)

Anonymous said...

Blessaður vinur,takk fyrir falleg orð. Eg vissi að maður myndi detta,það var bara spurning hvernær það myndi gerast,og það gerðist á lítilli ferð,guð sé lof. Hjólið er ótrulega vel sloppið,en fyndna við þennan dag er að ég keypti mér crash protector og átti ekki lykil til að láta þá á,þá hefði hjólið sloppið eiginlega alveg,svona er lífið furðulegt.En nú er bara að henda sér strax á bak og gleyma þessari óskemmtilegu reynslu.