Sunday, February 17, 2008

Langar í Benz!!!


Langar svo mikið í Benz,
um Íslandið fagra að þjóta.
Með gjöfin´í botni, taka svo skrens,
svoleiðis á lífsins að njóta.

En buddan leyfir ei kaupin sú,
hún hefur ei þéttleikann enn.
Með blóði og tárum hún fyllist nú,
glanskerran nálgast nú senn.

Því þótt brúnin sé þung og lífið sé hart,
hún léttist svo merkilega fljótt.
Þegar hestöflin öskra og þú ferð svo hratt,
einn með þér sjálfum og allt verður hljótt.

No comments: