Sunday, February 17, 2008

Langar í Benz!!!


Langar svo mikið í Benz,
um Íslandið fagra að þjóta.
Með gjöfin´í botni, taka svo skrens,
svoleiðis á lífsins að njóta.

En buddan leyfir ei kaupin sú,
hún hefur ei þéttleikann enn.
Með blóði og tárum hún fyllist nú,
glanskerran nálgast nú senn.

Því þótt brúnin sé þung og lífið sé hart,
hún léttist svo merkilega fljótt.
Þegar hestöflin öskra og þú ferð svo hratt,
einn með þér sjálfum og allt verður hljótt.

Saturday, February 16, 2008

Já ekki er öll vitleysan eins...

Fór inná vef www.mensa.com og tók þar eitthvað próf...náði 21/30..

Veit ekki hvort það er eitthvað sérstakt og get hugsanlega komist inn í klúbb alþjóðlegra snillinga....en svona er þetta..

Gaman ef fólk tæki prófið og póstaði útkomunni hérna, svona til samanburðar :)

Friday, February 15, 2008

Fréttir að austmann...meina austann

Jæja.

hvar á maður að byrja að bloggga eftir svona langa fjarveru. Skemst er að segja frá því að við erum flutt að Melgerði 11, á fimmtu hæð í 106fm nýja íbúð. Meirháttar :)

Stelpurnar blómstra eins og blóm í haga að sumri til, Ásdís kemur skellihlægjandi og syngjandi inn um dyrnar á hverjum degi og Andrea má ekki einu sinni vera að því að segja hæ við gamla manninn áður en hún er rokin út að leika sér við vinkonurnar.
Berglind er kominn í vinnu á leikskólanum hérna og gengur bara vel.

Ég er orðinn aðstoðar framleiðslusérfræðingur í kerskála á D-vakt (a.k.a Delta Force eða Landsliðið) og líkar það bara rosalega vel. Samstarfsfólkið meiriháttar í alla staði og mórallinn eftir því. Það stendur til að kíkja í svartaskóg á næstu dögum og fá sér einn eða tvo á næstu dögum til að þétta hópinn, sem nú þegar er þrusu þéttur.

Hér hefur maður eignast marga vini, sérstakalega skal taka fram "Félagann" Sigurð Rúnar. (fáum okkur svartann sem fyrst félagi)

Við bræðurnir erum að fara panta okkur sprænu í sumar til að lemja með flugulínu, drekka bjór og sleikja sólina,...já og reyna veiða eitthvað líka .... :) Rosalega hlakka ég til.

Svo er maður náttlega orðinn Þjónustustjóri Austurlands, fyrir Tölvuvinnsluna. Við erum að nema land hérna og ætlum okkur stóra hluti hérna. Erum nú þegar komnir með um 7 manns í lausa vinnu...svona eftir þörfum. Erum að leyta að húsnæði fyrir verkstæði og svona...bullandi uppgangur hérna fyrir austann sko...

Jæja...farinn að aðstoðar framleiðslusérfræðingast....


L8ter

Tuesday, November 20, 2007

Söknuður..

Já þessa dagana er ekki hægt annað að segja en að yfir mann ganga öldur af söknuði. Fjölskyldan svona langt í burtu, dúllurnar mínar 3 í rvk og ég 700km í burtu. Búnir að vera erfiðir mánuðir síðan í apríl, en þá fór ég vestur að vinna og síðan austur. En nú fer nú að birta til, enda koma þær til mín 1.des þegar ég fæ íbúðina afhenta. Svo er það í fréttum að við hjónin verzluðum okkur Ford Explorer 2002 módelið, fínn bíll það.

Jæja...túútles for now.

Wednesday, March 07, 2007

Já..rosalega ofsalega svakalega getur nú....

Vegna símtala og aðdáenda pósts sem sprengdi deepblue dedicataða póstserverinn minn.....þá mun ég fyrrir helgi birta aðra hugljómun sem er bæði trúarleg og pólitísk. Þeir sem hafa greindarvísitölu en 168, er beðnir um að lesa þetta ekki þar sem hausinn á ykkur mun þá springa innávið..

Fylgist með

Thursday, February 15, 2007

Hjólin byrjuð að snúast...

Það var í gær sem hjólinn byrjuðu að snúast í fyrsta eftir langa bið, seinna meir hér á þessu bloggi mun verða ljóst um hvað málið snýst en ég get ekki gefið það upp að svo stöddu.

Endilega fylgist með, því núna fer skemtunin að byrja................

Sunday, February 11, 2007

Saturday, February 10, 2007

Til hamingju gamli

Faðir minn Gústaf Gústafsson, er afmælisbarn dagsins..............til hamingju AFÆMLIÐ ..... ^^

Friday, February 09, 2007

Flöskurdagur.....jibbí

æji....vinnuvikan er næstum búinn...en lagersalan bjargar því...hún er á morgun fyrir útvalda viðsk. vini Task.

Spuring um að skella sér bara á skíði um helgina....það er ekkert annað í stöðuna að gera...

Thursday, February 08, 2007

ÞAÐ ER FUNDIÐ......


Þetta hjól verður mitt..........ehh...með tímanum og leyfi drottins...
500 kall....
Honda VTR 1000cc...2 strokka togari......Ó JE BEIBÍ

Malbikið....sólinn....hjólið......þingvellir.....ísland

Nú nálgast þeir dagar óðfluga að fært verður fyrir geðsjúklinga götunnar að fara út að leika aftur.....

ekki er útséð með það hvort að ég verði í hópi þeirra í sumar að svo stöddu.. (var þetta nokkuð óljóst?? )

Fjármálin leyfa ekki bifhjólakaup nema maður detti í lotto pottinn......en maður sér hvað færi verða gefinn........svo skilst mér á frúnni að hún ætli að fara læra á hjól í sumar með Helgu vinkonnu sinni...fljótt skipast veður í lofti, sjaldann kveður lítið bank úr tómri tunnu eða sjaldann er dögginn þurrrrrrrr......bárujárnið snýr sjaldann öfugt...(margir málshættir eiga við þetta )

En það verður bara gamann að fara hjóla mér kellu...

Ég er farinn að vinna í task.is tölvuverslun, er þar á verkstæðinu að gera við og vírusleyta og svoleiðis dót..mjög fínt. Nú stelpurnar mínar dafna eins og rósir.

Mikið rosalega langar mig í hjól aftur......

og tölvu.....
.og sumarbústað...
og hús....
og og og og og og og og...

pulsu....best að maður fái sér bara svoleiðis...mmmmm.....SS....south shore slaugthering comp.

Langur vetur..klæða sig betur

Já kæra lið, tíðin jafn svartnætt og svið.....

Langt er síðan bloggað var síðast enda hefur ekkert verið uppi...á þessum tengingi sem allir vitna í

Ég er enn rauðhærður....fagur sem fljóð í heiði....

En bara til að láta vita að maður sé á lífi og meðal manna og kvenna enn, þá hefur sá persónuleiki sem er við völd í kollinum á mér í dag ákveðið að halda áfram að blogga.

og það er ekkert sem þið getið gert í því... ( sá sem klipti á heimtaugina mína í sumar en vinsamlegast beðinn um að láta af þeima dónaskap, þar sem hún er nú varinn betur, í þeim skilningi að hún var dreginn inn um skolplögnina ^^ )

Thursday, July 20, 2006

Ohh....það er svo flottt...

Hjólið er næstum því komið alveg saman....glerið kemur í dag....ó hve gaman verður þá......


Myndir á morgun...

Wednesday, July 05, 2006

Æfintýrið er byrjað....

Jæja, hjólið var tekið í frumeindir í morgun, og fara með rispaða dótið í viðverð, restina ætla ég að taka eins mikið og ég get sjálfur í dag. Svo bara í sprautun með dótið á morgun. Límiðarnir verða skornir út á morgun,.....

......gott fólk...þetta verður meiriháttar.....MEIRIHÁTTAR.....

Tuesday, July 04, 2006

Helgin búin, vikan framundan...rigning...

Jæja, þá er helgin búin, hún var alveg ágæt, fyrir utan kulda og veður...

Konan reyndar hélt að hún væri að deyja úr þreytu og öðru....but no matter.. (I told u so ) heheheh

En það var virkilega gaman að fara undir eyjafjöllin, það var brilliant veður alla leiðina og svo var gaman að því að konan reyndi að stinga kallinn af meðan hann fékk sér bensín....en það tókst ekki....því maður fleytti 929 bara eftir þjóveginum.......VÁ HVAÐ ÞETTA ANDSK#$%#$ ÁFRAM ENDALAUST...

Svo féll einn hjólamaður í valinn þessa helgi, Snigill nr. 10, sendi fjölskyldu hins látna samúðarkveðjur.

Til Guðs: Drottinn hvað er með þessa rigningu, viltu hætta þessum rigningarsudda í þínum bænum. mkv. þinn einlægur.......offi :)

Friday, June 30, 2006

Helgin framundan...

DJÖFULINN SJÁLFUR....

Konan er með ættarmót, sem er allt gott og blessað, skemmilegur hópur þar á ferð og allt það......EN.....

Það spáir ragnarrökum á þessu svæði um helgina, rigningu og roki........JÍBBI FOKKING JEI....ohhhhh....

Ekkert sem bíður góðan daginn eins og að vakna kl 07 um morgunin og vera í spreng, með svanga grislinga með sér, fara út ....og míga uppí vindinn að gefnu tilefni..

Maður er nefnilega bara virkilega þreyttur eftir vikuna, búinn að vera frekar heavy, endanlega klára sig svo líkamlega og andlega með útileigu frá helvíti, og mæta svo gersamlega ónýtur á mánudagi til vinnu.

Ég elska konuna mína.....en ....com on......þetta er of mikið...

Tuesday, June 27, 2006

Kominn á nýja hjólið....

Má EKKERT vera að því að blogga...farinn að hjóla....blss

Monday, June 26, 2006

Gamli CBR fer í dag, Nýji kemur á morgun.

Já gleði gleði....

Í dag fær blámann nýjan eiganda, og ég verð hjólinu fátækari, en í stuttan tíma, fer að skoða og vonandi sækja nýja CBR´inn í kvöld eða dag. Sem er 929RR hjól, framleitt það herrans ár 2001. Að vísu er þetta "fixer upper" en það er bara gaman.....

Gaman að segja frá því að maður hjólaði næstum 500km um helgina......gott veður allan tíman...þingvellir og flúðir....allur pakkinn.

Svo var haldið innflutningsparty hjá Gísla Alla.....úff.....rosa party maður....og þinka í stíl við það.....rosa grín ...... Kalli fór á kostum....sofnaði og vaknaði 6 sinnum í leigaranum heim.....bara flottur..

Friday, June 23, 2006

R1, elsku vinur og félagi.

Endalaust er ég feginn að það er allt í lagi með þig kallinn minn, þegar þú hringdir í gær og sagði mér frá þessu, hugasði ég, "nei andskotinn, hann færi nú ekki að spila með mig svona".
Ljótt að hjólið skildi rispast, en fyrir öllu er að þú andar og er heill kæri vin. Tryggingarnar redda hjólinu, við verðum brátt komnir á malbikið aftur. Ég er persónulega snarhættur við öll kaup á stærra hjóli í bili.

Gott að það er í lagi með þig félagi.....úff...það eru ekki allir jafn heppnir.